flugfréttir

Fá ekki að nota Boeing 737-500 þotur í flugi til Bandaríkjanna

- Hafa ekki komið fyrir ADS-B búnaði fyrir í þoturnar

20. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 13:19

Boeing 737-500 þota frá flugfélaginu Bahamasair

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa bannað Bahamsair, ríkisflugfélaginu á Bahamaeyjum, að fljúga inn í bandaríska lofthelgi með þeim þremur Boeing 737-500 þotum sem félagið hefur í flotanum.

Ástæðan er sögð vera sú að Bahamasair hefur ekki komið fyrir ADS-B búnaði um borð í vélunum en slíkur búnaður varð gerður skyldur frá og með 1. janúar sl. fyrir allar flugvélar sem fljúga um í A, B og C loftrými í bandarískri lofthelgi.

Bahamasair hafði langan frest til þess að koma ADS-B kerfi fyrir í Boeing 737-500 þoturnar en fram kemur að félagið hafi ekki náð því þótt að búið var að festa kaup á búnaðinum.

Þrátt fyrir það náði félagið að koma kerfinu fyrir í öðrum flugvélum í flotanum sem eru af gerðinni ATR 42-600, ATR 72-600 og Boeing 737-700.

Félagið segir að búið sé að leita til annarra aðila til að verða sér út um ADS-B búnað en á meðan mun Bahamasair fljúga til West Palm Beach, Fort Lauderdale og til Miami með ATR flugvélum og Boeing 737-700.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga