flugfréttir

Boeing sækir um lán upp á 10 milljarða bandaríkjadali

- Tapa 4 milljörðum króna á dag vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX

21. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:12

Talið er að Boeing sé að tapa um 4 milljörðum króna á hverjum degi vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX þoturnar

Sagt er að Boeing sé að fara fram á að sækja um lán vegna þess taps sem framleiðandinn hefur orðið fyrir vegna vandamálsins með Boeing 737 MAX þoturnar en samkvæmt bandarískum fjölmiðlum á flugvélarisinn nú í viðræðum við nokkra banka vestanhafs vegna láns upp á 10 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar yfir eitt þúsund og tvöhundruð milljörðum króna.

Það var bandaríska sjónvarpsstöðin CNBC sem greindi fyrst frá í gær en fram kemur að Boeing hafi þegar tryggt sér vilyrði fyrir láni upp á 6 milljarða dali.

Samsetningarsalurinn í Renton þar sem Boeing 737 MAX hafa
verið framleiddar

Að meðaltali þá hefur Boeing tapað um 6 milljónum króna daglega á hverja Boeing 737 MAX þotu sem félagið hefur framleitt en ekki náð að afhenda og má áætla að tapið vegna kyrrsetninguna vélanna kosti Boeing um 4 milljarða króna á hverjum degi.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) tilkynntu nýlega að sennilega sé ekki von á því að vélarnar fái vottun vestanhafs fyrr en í mars en það gæti hinsvegar dregist fram í apríl eða lengur.

Boeing fær ekki greitt fyrir þær þotur sem framleiddar hafa verið eftir kyrrsetninguna í mars í fyrra fyrr en þær verða afhentar og hefur Boeing greint frá því að kyrrsetningin hafi kostað framleiðandann um 9 milljarða dali en sá kostnaður á eftir að aukast til muna þar sem framleiðslan á Boeing 737 MAX mun stöðvast tímabundið í janúar.

Sérfræðingar áætla að Boeing sé að tapa um 1 milljarði bandaríkjadölum á mánuði vegna vandamálsins en Boeing birti í síðustu viku afkomu fyrirtækisins fyrir árið 2019 sem var ein versta afkoma framleiðandans í marga áratugi. Þá afhenti Boeing mjög fáar flugvélar í fyrra samanborið við síðustu ár og voru afhendingartölurnar þær lægstu í 11 ár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga