flugfréttir
Spá því að árið 2020 í fluginu muni einkennast af ókyrrð
- Þrátt fyrir það er bjart framundan og tækifærin mörg
Þrátt fyrir mótbyr þá sér Avolon frá á mörg tækifæri í fluginu og þá sérstaklega er kemur að leigu á flugvélum
Írska flugvélaleigan Avolon spáir því að ókyrrð muni ríkja í flugiðnaðinum á þessu ári sem orsakast sérstaklega vegna óvissu í stjórnmálum í heiminum og meðal annars vegna áhyggja fólks út af umhverfismálum og loftlagsbreytingum.
„Á meðan við spenntum beltin og bjuggum okkur undir þetta árið 2019 þá verður 2020 árið sem við munum
þræða okkur í gegnum ókyrrðina“. Þetta kemur fram í skýrslu sem Avolon gaf út síðastliðinn sunnudag.
Þar segir að „þoka“ í stjórnmálum muni hafa áhrif á flugiðnaðinn auk viðskiptahafta af hálfu Bandaríkjanna, aukinnar
spennu í Miðausturlöndum og einnig vegna ástandsins í Hong Kong.
Í skýrslunni segir að „flugsamviskubit“ og „flugskömm“, þar sem farþegar eru hvattir til þess að sniðganga
flugsamgöngur, hafi haft áhrif á flugfélög í norðurhluta Evrópu í fyrra og sé nauðsynlegt að flugfélög geri sitt
besta til þess að bæta úr kolefnafórspori til að koma til móts við þessi hugtök og upplýsa almenning jafnóðum
um þær aðgerðir sem gerðar eru í umhverfismálum.
Þrátt fyrir mótbyr þá sér Avolon frá á mörg tækifæri í fluginu og þá sérstaklega er kemur að leigu á flugvélum
en þau eru í meirihluta þau flugfélög sem taka flugvélar á leigu í stað þess að kaupa beint frá framleiðanda.
Avolon telur að vandamálið með Boeing 737 MAX vélarnar eigi eftir að leysast á árinu
Avolon spáir því að flugfélög í heiminum eigi eftir að leggja inn pöntun upp á 150 milljarða bandaríkjadali á þessu ári
sem samsvarar 18 þúsund milljörðum króna.
Yfir 20 flugfélög urðu gjaldþrota árið 2019 eða hættu starfsemi sinni en Avolon segir að flestallar þær flugvélar, sem
þau félög höfðu á leigu, hafa verið leigðar út aftur til annarra flugfélaga sem endurspeglar eftirspurn eftir flugvélum.
Spá því að MAX vélarnar fljúga á ný á árinu
Avolon spáir því einnig að Boeing 737 MAX eigi eftir að fljúga á ný og það á þessu ári og að öll vandamál
er varðar þá flugvél muni heyra sögunni til þegar árið 2020 er á enda.
„Boeing 737 MAX er komin til að vera. Boeing mun með öruggum hætti ná að koma henni eftir í loftið og fá tekjur
af þeim á þessu ári og farþegar munu fljúga með vélunum“, segir í skýrslunni.
Avolon spáir því ekki að flugvélaframleiðendurnir eigi eftir að tilkynna um nýja flugvélategund þar sem bæði
Boeing og Airbus eru með nóg á sinni könnu, annars vegar að koma Boeing 737 MAX aftur í umferð og Airbus
mun einblína á fleiri pantanir í hina nýju, langdrægu, Airbus A321XLR.
Að lokum segir að Boeing muni ekki ýta úr vör nýrri farþegaþotu í ár sem kennt hefur verið við Boeing 797 en sennilega mun framleiðandinn
koma með fleiri yfirlýsingar varðandi fyrirhugaða þotu þar sem Boeing er undir þrýstingi frá Airbus sem
ætlar að koma með A321XLR á markaðinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.