flugfréttir

Stefna á fyrsta flug Boeing 777X á fimmtudag

21. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:57

Boeing hefur fengið pantanir í 309 eintök af Boeing 777X þotunni sem á að koma á markað árið 2021

Boeing hefur lýst því yfir að búið sé að ákveða jómfrúarflug Boeing 777X næstkomandi fimmtudag, þann 23. janúar, og mun arftaki Boeing 777 þotunnar fljúga þá sitt fyrsta flug ef veður leyfir.

Núverandi flugáætlun gerir ráð fyrir að fyrsta Boeing 777-9 tilraunarþotan muni hefja sig á loft frá Paine Field klukkan 10:00 að vesturstrandartíma en Boeing minnir á að tímasetningin gæti breyst vegna veðurs og annarra þátta.

Boeing kynnti Boeing 777X formlega til leiks á flugsýningunni í Dubai árið 2013 sem ný og sparneytnari útgáfa af Boeing 777 sem er í dag ein vinsælasta tveggja hreyfla breiðþota heims en frá því hún kom á markað árið 1995 hafa yfir 1.600 eintök verið smíðuð.

Fyrsta Boeing 777X tilraunarþotan (N779XW) undirbúin fyrir akstursprófanir í dag

Töluverð seinkun hefur orðið á Boeing 777X verkefninu sem átti upphaflega að fljúga sitt fyrsta flug í fyrra og til stóð að hún kæmi á markaðinn á þessu ári en samkvæmt núverandi áætlun verður fyrsta eintakið afhent árið 2021.

Seinkunin hefur orsakast að mestu leyti vegna vandamála með GE9X hreyfilinn frá General Electric en þá hefur Boeing einnig tilkynnt að framleiðandinn muni fresta smíði á minni tegundinni, Boeing 777-8.

Boeing hefur ekki enn náð að selja eins margar Boeing 777X þotur eins og til stóð og hefur framleiðandinn aðeins fengið pantanir í 309 eintök.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga