flugfréttir

Fimm flugfélög bjóðast til að aðstoða Malaysian Airlines

22. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:56

Boeing 737 þotur Malaysia Airlines á flugvellinum í Kuala Lumpur

Ríkisstjórnin í Malasíu segir að fimm tilboð hafa borist frá flugfélögum sem hafa boðið aðstoð sína við að koma rekstri flugfélaginu Malaysian Airlines á réttan kjöl.

Mahathir Mohamed, forsætisráðherra Malasíu, tilkynni þetta á blaðamannafundi sl. mánudag en Malaysian Airlines hefur ekki enn náð sér að fullu eftir tvær hörmungur sem dundu yfir flugfélagið árið 2014 er Boeing 777 farþegaþota félagsins, flug MH370, hvarf sportlaust á leið sinni frá Kuala Lumpur til Peking og er flug MH17 var skotið niður með flugskeyti yfir Úkraínu.

Sama ár tók einkafyrirtækið Khazanah Nasional yfir rekstur félagsins í von um að bæta reksturinn en félagið hefur þrátt fyrir það verið skuldsett síðan og haldið áfram að safna skuldum.

Meðal flugfélaga sem hafa boðið aðstoð sína eru Malindo Air, Lion Air í Indónesíu og Air Asia en erlend flugfélög sem hafa boðið fram aðstoð eru Air France-KLM og Japan Airlines.

Malaysia Airlines er eina stóra flugfélagið í suðausturhluta Asíu sem hefur ekki stofnað sitt eigið lágfargjaldafélag en Garuda Indonesia hefur til að mynda stofnað NAM Air og Philippine Airlines hefur PAL Express en á meðan hefur Malaysia Airlines tapað 12 prósent af markaðshlutdeild sinni til lágfargjaldafélaga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga