flugfréttir

A321neo framleidd í Toulouse eftir að smíði A380 verður hætt

- Airbus A321neo verður framleidd á þremur stöðum í heiminum árið 2022

22. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 09:51

Airbus A321neo þoturnar eru í dag framleiddar í Hamborg í Þýskalandi og í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum

Airbus hefur tilkynnt að til standi að hefja framleiðslu á Airbus A321neo þotunum í Toulouse í fyrsta sinn og verður sú staðsetning því sú þriðja í heiminum þar sem A321neo þotan verður framleidd auk þess sem ný langdræg útgáfa af þotunni verður smíðuð í Toulouse.

Airbus segir að þetta hafi verið ákveðið þar sem gríðarleg eftirspurn er eftir Airbus A321neo þotunni auk Airbus A321LR og A321XLR sem verður enn langdrægari en LR-útgáfan.

Í dag er A321neo þotan framleidd á tveimur stöðum í heiminum, í Hamborg í Þýskalandi og í Mobile í Alabama í Bandaríkjunum en flugfélög í heiminum hafa pantað yfir 3.200 eintök af A321neo þotunni og hafa 290 eintök verið afhent sem þýðir að Airbus á enn eftir að smíða um tæp 3 þúsund þotur. Þá eru ekki meðtalin yfir 7.000 eintök af öðrum tegundum úr A320neo fjölskyldunni.

Þar sem Airbus mun á næstunni hætta að framleiða risaþotuna Airbus A380 í Toulouse ætlar framleiðandinn að breyta því verksmiðjusvæði og koma upp nýjum samsetningarsal fyrir Airbus A321neo þoturnar en verksmiðjan í Toulouse, þar sem A320neo eru framleiddar, eru of litlar fyrir lengri gerðina, A321neo.

Verksmiðjuálman í Lagardere í Toulouse þar sem risaþotan Airbus A380 hefur verið smíðuð

Þá stefnir Airbus á að auka framleiðsluhraðann í Mobile í Alabama úr fimm Airbus A321neo þotum upp í sjö þotur á mánuði en stefna Airbus er að ná að afhenda 63 eintök af A320neo þotum á mánuði á næstunni.

Airbus áætlar að geta hafið framleiðslu á Airbus A321neo í Toulouse um mitt árið 2022 og ári síðar, árið 2023, er gert ráð fyrir að afhendingar hefjist á fyrstu Airbus A321XLR þotunum.

Þrátt fyrir vinsældir farþega á A380 risaþotunni þá hefur Airbus ekki fengið eins margar pantanir í risaþotunni eins og gert var ráð fyrir í upphafi 21. aldarinnar en framleiðandinn taldi að risaþotan myndi leysa vandamál flugfélaganna er varðar þrengsli á stærstu flugvöllum heimsins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga