flugfréttir
Klæðning losnaði af í flugtaki
Flugvélin, sem var á leið til Melbourne, þurfti að snúa við aftur til Brisbane
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 frá ástralska flugfélaginu Virgin Australia þurfti að snúa við til Brisbane skömmu eftir flugtak eftir að farþegar tilkynntu áhöfninni um að eitthvað væri að losna á vængnum.
Nokkrir farþegar komu auga á hlut sem virtist vera klæðning sem hafði losnað og blakti til nálægt
flöpsum á aftari vængbrúninni á meðan þotan var í flugtaksklifrinu.
Atvikið átti sér stað sl. sunnudag og var flugvélin á leið til Melbourne en flugmennirnir ákváðu að snúa við
til Brisbane þar sem vélin lenti um klukkustund síðar.
Þotan, sem ber skráninguna VH-VOO, hefur verið í flota Virgin Australia frá árinu 2003 en flugfélagið gaf frá
sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að ekki hafi verið nein hætta á ferðum.
Í yfirlýsingu segir Virgin Australia að klæðning af vængbörðum hefði flagnað af og festist hún milli vængsins og hlífar sem ver brautir sem flapsarnir renna eftir.
Einhverjum farþegum stóð ekki á sama og sagði einn farþegi að þetta hefði hrætt eiginkonuna hans þar
sem hún er flughrædd.
Önnur þota beið farþeganna við komuna til Brisbane og var skipt um vél og kom sú flugvél öllum á leiðarenda.
Myndband:
Virgin Australia Boeing 737-800 (VH-VOO) safely returned to Brisbane, Australia following delamination of a panel on the underside of the left wing during climb-out on flight #VA346 to Melbourne. @9NewsAUS https://t.co/51eF8WhlLz pic.twitter.com/Xkpnyyn9Wt
— JACDEC (@JacdecNew) January 20, 2020
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.