flugfréttir

Ekki hægt að segja til um hvenær MAX-vélarnar fljúga á ný

- Ætlar að fljúga með fjölskylduna sína í 737 MAX áður en þær fá grænt ljós

10. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:52

Steve Dickson, yfirmaður bandarískra flugmálayfirvalda (FAA)

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) segja að ekki sé enn komin nein dagsetning á hvenær von sé á því að Boeing 737 MAX þoturnar muni hefja sig til flugs að nýju og ekki sé hægt að gefa upp nein áætluð tímamörk varðandi endurkomu þotunnar.

Steve Dickson, yfirmaður FAA, gaf þó í skyn á blaðamannafundi fyrir helgi að von sé að að fyrsta tilraunaflugið, sem er liður í endurvottunarferlinu, sé að vænta á „næstu vikum“.

Dickson sagði einnig við blaðamenn að FAA myndi ekki aflétta kyrrsetningunni fyrr en fullvíst sé að þotan sé örugg til þess að fljúga að nýju með farþega og ætlar hann sjálfur ekki að aflétta banninu fyrr en hann verði sjálfur búinn að fljúga um borð í Boeing 737 MAX tilraunarþotum Boeing.

Dickson sagði að hann myndi fljúga með fjölskyldu sinni um borð í þotunni áður en FAA gefur grænt ljós að að þær geti flogið á ný til þess að sýna fólki að það sé treystandi að ferðast með þeim aftur.

Boeing tilkynnti á dögunum að von væri á því að Boeing 737 MAX myndi fljúga á ný í sumar en Dickson segir að það hjálpi engum að koma með slíkar yfirlýsingar þar sem það er enn ekki tímabært að segja til um slíkt.

Dickson segir að það sé þegar búið að laga fjölmörg atriði varðandi Boeing 737 MAX vélarnar en enn eru atriði sem ekki er búið að lagfæra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga