flugfréttir
Tveir nýir framkvæmdarstjórar ráðnir hjá Isavia
Anna Björk Bjarnadóttir (til vinstri) og Ragnheiður Hauksdóttir (til hægri)
Tveir nýir framkvæmdastjórar hafa verið ráðnir til starfa hjá Isavia, þær Anna Björk Bjarnadóttir sem hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra þjónustu- og rekstrarsviðs og Ragnheiður Hauksdóttir sem hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og upplýsingatækni. Þær taka báðar sæti í framkvæmdastjórn Isavia ohf.
Anna Björk hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu og áralanga stjórnunarreynslu. Nú síðast var hún framkvæmdastjóri ráðgjafar og sérlausna hjá Advania. Áður starfaði hún í átta ár hjá Símanum, þar af sat hún fimm ár í framkvæmdastjórn. Þá hefur hún einnig leitt ráðgjafarfyrirtækið Expectus og gegndi þar hlutverki framkvæmdastjóra. Anna Björk hefur einnig setið í stjórnum fjölmargra félaga og samtaka þar á meðal hjá Festu, Sensa og Viðskiptaráði Íslands.
Anna Björk tekur við nýju þjónustu- og rekstrarsviði Isavia á Keflavíkurflugvelli sem annast daglegan rekstur Keflavíkurflugvallar en Anna Björk hóf störf í dag, mánudaginn 10. febrúar.
Ragnheiður hefur yfir tíu ára starfsreynslu sem stjórnandi hjá Vodafone, síðast sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs. Hún hefur komið að mörgum ólíkum verkefnum innan Vodafone allt frá tæknilegum rekstri til sölu og þjónustu. Ragnheiður hefur einnig setið í stjórn Vertonets, hagsmunasamtaka kvenna í upplýsingatækni, og í fagráði Tækniþróunarsjóðs.
Ragnheiður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og Copenhagen Business School þar sem sérsvið hennar var markaðsfræði og alþjóðaviðskipti.
Ragnheiður tekur við nýju stoðsviði Isavia sem er stofnað til að annast stafræna þróun og rekstur upplýsingatækni hjá félaginu. Það fer með ábyrgð á rekstri upplýsingatækni hjá Isavia, annast stafræna þróun og nýsköpun og leiðir stefnumörkun félagsins í stafrænni umbreytingu.
Ragnheiður hóf störf miðvikudaginn 5. febrúar síðastliðinn.
„Við hjá Isavia fögnum því að hafa fengið afar öfluga og þrautreynda stjórnendur til starfa hjá félaginu,“ segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. „Við bjóðum Önnu Björk og Ragnheiði hjartanlega velkomnar til starfa. Þeirra bíða spennandi verkefni.“
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.