flugfréttir
Annað stærsta flugfélag Ítalíu gjaldþrota
- Air Italy sem áður hét Meridiana hætti rekstri í dag
Airbus A330 breiðþota Air Italy á Malpensa-flugvellinum í Mílanó
Ítalska flugfélagið Air Italy er gjalþrota og hætti félagið starfsemi sinni í dag vegna rekstarerfiðleika þrátt fyrir að Qatar Airways hafi átt helmingshlut í félaginu.
Air Italy var annað stærsta flugfélagið á Ítalíu á eftir ríkisflugfélaginu Alitalia og hafði félagið þrettán þotur í flotanum
af gerðinni Airbus A330, Airbus A320, Boeing 737-800 auk þess sem félagið hafði fengið þrjár Boeing 737 MAX 8 þotur
afhentar.
Félagið segir að önnur flugfélög munu sinna áætlunarflugi til nokkurra áfangastaða félagsins fram til
25. febrúar en
farþegar sem eiga bókað flug eftir þann dag munu fá flugmiðann endurgreiddan.
Sögu Air Italy má rekja 56 ár aftur í tímann en félagið var stofnað árið 1963 sem Meridana Fly og en síðar var nafni þess breytt í Meridiana og þekktu langflestir félagið undir því nafni. Í febrúar árið 2018 var nafninu breytt í Air Italy eftir að Qatar Airways keypti helmingshlut í Meridiana.
Qatar Airways sagði að félagið myndi styðja reksturinn svo lengi
sem að allir hluthafar myndu leggja sig fram við að leggja hönd á plóg en þrátt fyrir það gekk reksturinn brösulega.
Meridiana var stofnað árið 1963 og var félagið lengi eitt af stærstu flugfélögunum á Ítalíu
Qatar Airways segir í yfirlýsingu sinni að félagið hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til þess að tryggja áframhaldandi rekstur
Air Italy með því að verða þeim úti um flugvélar, aðstoða félagið við leiðarkerfið auk þess að leggja til fé í reksturinn.
Akbar Al Baker, framkvæmdarstjóri Qatar Airways, tilkynnti árið 2017 að Air Italy myndi fara í beina samkeppni við ríkisflugfélagið Alitalia og stóð til að nýja flugfélagið muni söðla undir sig Ítalíu á mjög skömmum tíma á næstu árum en þær áætlanir fóru á annan veg.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.