flugfréttir
Kórónaveiran getur valdið röskun á afhendingum hjá Boeing
Mikill samdráttur hefur orðið á flugsamgöngum til og frá Kína og sér Boeing fram á að langvarandi áhrif eigi eftir að bitna á afkomu fyrsta ársfjórðungs
Boeing varaði við því í gær að áhrif útbreiðslu kórónaveirunnar gæti farið að hafa áhrif á afhendingar á nýjum farþegaþotum á fyrsta ársfjórðungi ársins og þá sérstaklega er kemur að afhendingum á flugvélum til Asíulanda.
Janúar var mjög dræmur mánuður fyrir Boeing sem fékk enga pöntun í nýjar farþegaþotur í þeim mánuði og þá afhenti
flugvélaframleiðandinn aðeins 13 þotur til viðskiptavina.
Gríðarlegur samdráttur hefur orðið á eftirspurn eftir flugsætum til Kína undanfarnar vikur og alls er búið að aflýsa
yfir 85.000 flugferðum til og frá Kína frá 23. janúar til 11. febrúar.
Greg Smith, fjármálastjóri Boeing, segir að framleiðandinn sé að fylgjast með þróun mála og á Boeing í viðræðum
við kínverska viðskiptavini varðandi afhendingar.
„Það er greinilegt að þetta er að fara hafa áhrif þar sem flugfarþegum fækkar og mun afkoma á fyrsta ársfjórðungi verða
í takt við aðstæður“, segir Smith sem tekur fram að óvissan um hversu lengi áhrifanna mun gæta þá getur kórónaveiran
einnig haft slæmar afleiðingar fyrir fraktflugið sem hefur nú þegar átt undir högg að sækja.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.