flugfréttir

Boeing flýgur 737 MAX til að prófa uppfærslur

- Frekari prófanir framundan áður en kemur að sjálfu vottunarfluginu

13. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:10

Boeing 737 MAX 7 tilraunarþota Boeing kemur inn til lendingar á Boeing Field

Boeing hefur sl. daga flogið einni af Boeing 737 MAX tilraunarþotunum sínum nokkrar flugferðir í þeim tilgangi að prófa þær uppfærslur sem gerðar hafa verið fyrir MAX-vélarnar sl. mánuði.

Boeing segir að ekki sé um vottunarflug að ræða en flugið hafa hinsvegar verið liður í prófunum sem framundan eru áður en að vottunarfluginu sjálfu kemur.

Fyrsta flugið var flogið þann 7. febrúar sl. og hefur einni af tilraunavélunum, sem er af gerðinni Boeing 737 MAX 7, verið flogið daglega fram til 10. febrúar en framundan er að framkvæmda prófanir bæði á stuttum flugleiðum og lengri flugleiðum um Bandaríkin og fara prófanir fram við mismunandi veðurskilyrði og í mismunandi flughæð.

Í dag eru nákvæmlega 11 mánuðir frá því að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar um allan heim en talið er að meginorsök tveggja flugslysa megi rekja til kerfisbúnaðar sem kallast MCAS en talið er að sá búnaður virkaði ekki eins og til var ætlast.

Framundan stendur til að fljúga 737 MAX tilraunarþotu Boeing frá Seattle til Omaha í Nebraska og einnig til Kansas City en öll flugin eru flogin í samráði við bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) sem vinna náið með Boeing í vottunarferlinu.

Myndband af lendingunni er Boeing 737 MAX 7 tilraunarþota Boeing kemur aftur til baka til Boeing Field







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga