flugfréttir
Höfða mál gegn Boeing vegna kaupa á 737 MAX einkaþotum
- Segjast hafa verið svikin og vilja skila þotunum og fara fram á bætur
Fyrirtækin vilja skila þotunum, fá þær að fullu endurgreiddar auk þess sem farið er fram á skaðabótagreiðslur.
Tvö fyrirtæki sem pöntuðu einkaþotuútgáfur af Boeing 737 MAX þotunum (Boeing Business Jet) á sínum tíma hafa höfðað mál gegn Boeing sem verður tekið fyrir á næstunni í hæstaréttinum í King County sýslu í Seattle en þetta er í fyrsta sinn sem málsókn á hendur flugvélaframleiðandanum fer fyrir hæstarétt vegna Boeing 737 MAX.
Það er lögfræðifyrirtækið Lane Powell PC sem fer með málið fyrir hönd skjólstæðinganna sem eru bandarísku fyrirtækin
F&L Aviation og Brilliant Aviation en fyrirtækin tvö segja að þau hefðu ekki lagt inn pantanir í Boeing Business Jet
útgáfur af 737 MAX ef þau hefði vitað að vélarnar svipuðu ekki til Boeing 737NG vélanna eins og Boeing hafði
upplýst um.
Í málsókninni kemur fram að fyrirtækin vilja skila þotunum en fyrri þotan var afhent í nóvember árið 2018 skömmu
eftir fyrra flugslysið hjá Lion Air í Indónesíu og sú síðari var afhent í janúar 2019, tveimur mánuðum áður en
seinna flugslysið átti sér stað í Eþíópíu.
Fyrirtækin segja að þau hafi ekki verið meðvituð um að vélarnar kæmu með sérstökum búnaði sem nefnist MCAS
og treystu þau á að Boeing 737 MAX væri nokkurnveginn alveg eins og Boeing 737NG þoturnar og hefðu svipaða
flugeiginleika.
Málsóknin, sem telur 44 blaðsíður, segir að um svindl hafi verið að ræða og Boeing hafi ekki sett öll spilin á borðið í söluferlinu og er sagt að um brot á kaupsamningi sé að ræða. Fyrirtækin fram á að skila þotunum, fá þær að fullu endurgreiddar auk þess sem
farið er fram á skaðabótagreiðslur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.