flugfréttir

Kórónaveiran gæti kostað flugiðnaðinn yfir 600 milljarða

14. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:22

Tugi flugfélaga hafa aflýst öllu flugi til og frá Kína

Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) spáir því að úrbreiðsla kórónaveirunnar, sem nefnd hefur verið Covid-19, muni kosta flugiðnaðinn um 4-5 milljarða bandaríkjadali á þessum ársfjórðungi eða sem samsvarar 636 milljörðum króna.

ICAO telur að áhrif kórónaveirunnar eigi eftir að bitna mun verr á flugfélögunum í heiminum heldur en áhrif SARS-vírusins árið 2003.

Spá þessi byggir meðal annars á þeirri staðreynd að farþegum hefur fækkað á sl.vikum um 39 til 41% sem samsvarar því að allt að 19 milljónir færri farþegar hafa flogið með farþegaflugi að undanförnu frá áramótum vegna veirunnar.

Fjárhagslegt tap samkvæmt spánni tekur samt ekki með í reikninginn innanlandsflugið í Kína eða flug til meginlandsins frá Hong Kong, Macau og Taívan þrátt fyrir að það séu þau svæði sem hafa orðið hvað verst úti vegna kórónaveirunnar.

ICAO segir að um 70 flugfélög í heiminum hafi aflýst flugferðum til og frá Kína og þar á meðal flugfélög á borð við American Airlines og Lufthansa á meðan fimmtíu flugfélög hafa dregið úr flugferðum til landsins.

Um er að ræða verulegan viðsnúning miðað við upphaflega spá ICAO sem gerði ráð fyrir 9% aukningu í farþegaflugi á fyrsta ársfjórðungi m.a.v sama tíma í fyrra.

ICAO segir að um bráðabirgðaspá sé að ræða og þurfi ítarlega mat að fara fram til að fá raunhæfari mynd til að meta að fullu það fjárhagslega tjón sem kórónaveiran mun hafa á flugiðnaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga