flugfréttir

Allar Cirrus Vision SF50 þotur kyrrsettar

- FAA gefur út neyðartilskipun vegna brunahættu í stjórnklefa

18. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:47

Tilskipunin nær til yfir 170 þotna af gerðinni Cirrus Vision SF50

Allar Cirrus Vision SF50 þotur í heiminum hafa verið kyrrsettar eftir að bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) gáfu út neyðartilskipun varðandi lofthæfi vélanna eftir atvik þar sem eldur kom upp í stjórnklefa á einni slíkri þotu þann 27. desember sl. á meðan hún var á jörðu niðri á flugvellinum í Santa Monica í Kaliforníu.

Eldsupptök voru rakin til ofhitnunar í öryggi í radíókerfi í fjarskiptabúnaði og hefur tilskipunin verið send til allra þeirra flugmanna og flugrekstaraðila sem hafa SF50 Vision þotuna í rekstri.

12 öryggiseiningar eru að finna í stjórnklefa á hverri SF50 þotu sem tengja saman hljóð og míkrófóna við innstungur en Cirrus-framleiðandinn tekur fram að þetta séu ekki innstungurnar sem notaðar eru fyrir heyrnartól fyrir flugmenn og farþega.

Engar Cirrus SF50 Vision flugvélar fá að fljúga nema að búið sé að skipta um þessa öryggisplötur nema ef um ferjuflug sé að ræða og þarf þá sérstakt leyfi fyrir slíku flugi.

FAA segir að ef flugrekstaraðilar eða eigendur Cirrus SF50 flugvéla skipti ekki um kerfið sé hætta á því að eldur komi skyndilega upp í flugi sem getur orðið til þess að flugmenn geti misst stjórn á flugvélinni og einnig hlotið brunasár.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga