flugfréttir
Í viðræðum við 700 flugmenn um launalaust leyfi
- Kórónaveiran hefur meiri áhrif á flug til Asíu en Finnair sá fram á
Airbus A350 þota Finnair á flugvellinum í Hong Kong
Flest bendir til þess að útbreiðsla kórónaveirunnar eigi eftir að hafa þónokkur áhrif á rekstur finnska flugfélagsins Finnair sem á nú í viðræðum við flugmenn varðandi launalaust leyfi.
Stór hluti leiðarkerfis Finnair í millilandaflugi eru áfangastaðir í Asíu og þar á meðal í Kína þar sem útbreiðsla
veirunnar hefur verið hvað skæðust.
Finnair aflýsti fyrr í þessum mánuði öllu flugi frá Helsinki til Kína að minnsta kosti til enda marsmánaðar en félagið hefur flogið til fimm kínverskra borga
sem eru Peking, Guanzhou, Nanjing, Shanghai og Xian.
Þar sem að áhrif veirunnar virðast ætla að ílengjast hefur Finnair hafi viðræður við um 700 flugmenn, sem fljúga
breiðþotum til fjarlægra áfangastaða, og beðið þá um að taka sér launalaust leyfi tímabundið en viðræður hefjast
að fullu í næstu viku.
Topi Manner, framkvæmdarstjóri Finnair, sagði í seinustu viku, er afkomuskýrsla félagsins fyrir árið 2019 var kynnt, að
hann gerði ráð fyrir því að félagið yrði yfirmannað með breiðþotuflugmenn og væri mögulegt að hægt væri að nýta
tímann í þjálfun en nú lítur út fyrir að staðan sé verri þar sem áhrif veirunnar virðist ætla að dragast á langinn.
Finnair mun hefja formlegar viðræður við flugmenn sína í næstu viku
Päivyt Tallqvist, talsmaður Finnair, segir að félagið verði að haga seglum eftir vindi og endurskoða þá þörf sem félagið hefur fyrir flugmenn hverju
sinni.
Flestir af stærstu flugvöllum Kína er í dag lamaðir þar sem flest flugfélög hafa hætt flugi til Kína og á það einnig við innanlandsflug í landinu.
Meðal erlenda flugfélag sem hafa hætt að fljúga til Kína vegna kórónaveirunnar eru Air France, American Airlines, Austrian Airlines, British Airways, Delta
Air Lines, Egyptair, Iberia, KLM, Qatar Airways, United Airlines og þá hefur Air Canada, Emirates, Etihad Airways, Qantas, Singapore Airlines og
Virgin skorið niður flug til Kína.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.