flugfréttir
Skera niður innanlandflugið í Noregi vegna hárra skatta
- Fella niður 4.000 brottfarir í ár og hætta flugi til nokkurra bæjar
Dash 8 Q300 flugvél Widerøe á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Norska flugfélagið Widerøe hefur tilkynnt um umtalsverðan niðurskurð í leiðarkerfi félagsins í innanlandsflugi í Noregi sem gripið verður til strax með vorinu en félagið segir niðurskurðinn óhjákvæmilegan.
Widerøe mun fækka brottförum í innanlandsflugi um 15 prósent sem samsvarar 4.000 brottförum í ár auk
þess sem félagið mun hætta flugi til nokkurra áfangastaða.
Rekstarumhverfi Widerøe hefur versnað að undanförnu og eru margar flugleiðir í innanlandsfluginu ekki lengur
arðbærar og fækkar þeim áfangastöðum sífellt sem skila félaginu hagnaði.
Bombardier-flugvélar Widerøe á flugvellinum í Bergen
Widerøe segir að ein helsta orsökin séu háir skattar á innanlandsflug í Noregi sem gerir félaginu erfitt fyrir að halda
úti áætlunarflugi en þá spilar gengi norsku krónunnar einnig stórt hlutverk auk þess sem ferðamynstur Norðmanna
hefur breyst á undanförnum árum.
„Eigum ekki annarra kosta völ“
„Því miður þá verðum við að skera niður bráðnauðsynlegar flugsamgöngur til nokkurra svæða í Noregi. Ástandið
er mjög alvarlegt og það bitnar á mörgum samfélögum en við höfum hreinlega engra annarra kosta völ“, segir
Stein Nielsen, framkvæmdarstjóri Widerøe.
Widerøe hafði varað við því í ágúst í fyrra að félagið myndi þurfa að fella niður hátt í 40 flugleiðir í innanlandsfluginu í Noregi ef norska ríkisstjórnin myndi hækka skatta og álögur á flugsamgöngur eina ferðina enn en margar flugleiðir hættu að vera arðbærar árið 2015 þegar skattar bættust við innanlandsflugið það árið.
Stjórnklefinn um borð í Dash 8 Q300 flugvél félagsins
Frá og með 4. maí næstkomandi mun Widerøe fjarlægja 4.000 brottfarir úr leiðarkerfinu á ári sem samsvarar 15%
samdráttar í áætlunarflugi á stuttum flugleiðum. Þá mun félagið einnig hætta að fljúga á milli Evenes, Bodø og Andenes og þá verður aðeins flogið yfir sumartímann til nokkurra flugvalla sem hingað til hefur verið flogið til allt árið um kring.
Meðal annars verður flugferðum fækkað á milli Bodø og Svolvær, milli Florø og Oslóar og Bergen, milli Tromsö, Vadsø og Alta
og einnig verður dregið úr tíðni á milli Oslóar og Hovden og á milli Hammerfest og Tromsö.
Þær flugleiðir sem verða lagðar af er áætlunarflug frá Osló til Brønnøysund, Leknes, Mo I Rana, Namsos, Sandnessjøen og
til Svolvær.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.