flugfréttir

Húsleit gerð hjá Avianca vegna gruns um mútur

19. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Frá aðgerðum í höfuðstöðvum Avianca í Bogóta í síðustu viku

Aðilar frá öryggis- og leynisþjónustu á vegum ríkisstjórnar Kólumbíu gerðu húsleit í höfuðstöðvum flugfélagsins Avianca í Bogóta í síðustu viku í tengslum við rannsókn á mútum og spillingu innan herbúða flugfélagsins.

Avianca er stærsta flugfélag Kólumbíu og er móðurfélagið, Avianca Holdings, eitt stærsta fyrirtæki í flugrekstri í Suður-Ameríku.

Húsleitin fór fram þann 12. febrúar sl. og var lagt hald á gögn sem tengjast grunsemdum um að stjórnendur félagsins hafi mútað ráðherrum og opinberum starfsmönnum annarra landa með frímiðum, afsláttarmiðum og öðrum fríðindum sem stangast á við lög í mörgum löndum sem félagið flýgur til.

Avianca segir í yfirlýsingu að félagið muni vinna með leyniþjónustunni og lét félagið aðila fá öll þau gögn sem farið var fram á sem verða afhent til dómsmálaráðuneyti Kólumbíu en tekið er fram að málið varði fyrrum yfirmenn félagsins.

Mögulegt er að málið sé brot á bandarískum lögum um aðild og viðskiptahætti erlendra fyrirtækja þar sem Avianca er skráð í kauphöllinni í New York.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga