flugfréttir
Tvær flugvélar rákust saman á flugi í Ástralíu
- Árekstur milli Piper Seminole og Beechcraft Travel Air
Flugvélarnar rákust saman í 4.000 feta hæð skammt frá flugvellinum í bænum Mangalore
Fjórir létu lífið í árekstri sem varð á milli tveggja flugvéla í Ástralíu í nótt þegar vélarnar rákust saman á flugi nálægt flugvellinum í bænum Mangalore, skammt norður af Melbourne.
Vélarnar voru báðar litlar tveggja hreyfla flugvélar, önnur af gerðinni Beechcraft D95A Travel Air og hin
af gerðinni Piper PA-44 Seminole. Tveir voru um borð í hvorugum vélunum fyrir sig og komst enginn lífs af.
Seminole-flugvélin var kennsluflugvél frá Moorabbin Aviation flugskólanum sem hafði farið í loftið frá Mangalore-flugvellinum með flugkennara innanborðs og atvinnuflugmannsnema sem var í verklegri þjálfun á fjölhreyflaflugvél.
Flak Piper Seminole flugvélarinnar
Beechcraft flugvélin var í eigu flugklúbbsins Peninsula Aero Club og hafði sú vél farið í loftið frá Tyabb-flugvellinum, suður af Melbourne. Flugmálayfirvöld telja að sú vél hafi verið á leið til Mangalore-flugvallarins til þess að lenda
eða æfa aðflug að vellinum en báðar flugvélarnar höfðu sent inn blindflugsáætlun.
Orsök slyssins eru enn ókunn en lögregluþjónn í Viktoríu-ríki segir í samtali við ástralska fjölmiðla að skýjahula hafi verið yfir í þeirri hæð sem vélarnar rákust saman og mögulega hafi flugmenn beggja vélanna ekki séð hvorn annan.
Flugvélarnar sem rákust saman. VH-JQF (Piper Seminole) og VH-AEM (Beechcraft Travel Air)
Flugvöllurinn í Mangalore er óstjórnaður flugvöllur og láta flugmenn vita af fyrirætlunum sínum með að tilkynna sig
í talstöðinni og einnig ef þeir eru í nágrenni flugvallarins.
Önnur flugvélin féll strax til jarðar á meðan hin náði að svífa lengur og brotlenti sú vél í um tveggja kílómetra
fjarlægð frá hinni en flök vélanna voru mjög illa farin.
Slysið átti sér stað um klukkan 00:25 í gærkvöldi að íslenskum tíma
Flugslysasérfræðingar frá Brisbane, Melbourne og frá Sydney voru sendir á staðinn skömmu eftir að fregnir bárust
af slysinu sem átti sér stað klukkan 11:25 að áströlskum tíma (klukkan 00:25 að íslenskum tíma).
Fram kemur að þetta sé fyrsta flugslysið í Ástralíu í meira en áratug þar sem flugvélar rekast á í miðju flugi en seinast
átti sambærilegt slys sér stað árið 2008 suðvestur af Sydney.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.