flugfréttir
Setja fjórar Boeing 757 og Boeing 767 þotur á sölu
Ein af Boeing 757-200 þotum Uzbekistan Airways
Flugfélagið Uzbekistan Airways hefur sett á sölu fjórar Boeing farþegaþotur en vélarnar sem félagið hefur ákveðið að losa sig við og selja eru tvær Boeing 757-200 þotur og tvær Boeing 767-300ER breiðþotur.
Boeing 757-200 þoturnar tvær eru báðar 20 ára gamlar en félagið setur 12 milljónir bandaríkjadali á hvora vél
sem samsvarar 1,5 milljörðum króna. Báðar vélarnar koma með Pratt & Whitney PW2037 hreyflum.
Boeing 767-300ER breiðþoturnar sem félagið ætlar að selja eru 17 ára og 15 ára gamlar en verðmiðinn
fyrir þá eldri eru 21.4 milljónir bandaríkjadali (2.7 milljarðar) en fyrir þá yngri fer félagið fram 22.3 milljónir USD
sem samsvarar 2.8 milljörðum króna. Báðar vélarnar koma með PW4062 hreyflum frá Pratt & Whitney.
Uzbekistan Airways gefur áhugasömum frest til 2. mars næstkomandi til að senda inn tilboð í vélarnar.
Flugfélagið hefur haft sex Boeing 757-200 þotur í flotanum og sjö Boeing 767-300ER breiðþotur
en félagið hefur verið að endurnýja flotann með sjö nýjum Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-8.
Boeing 767-300ER breiðþota félagsins
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.