flugfréttir
Lufthansa leggur 13 breiðþotum vegna kórónaveirunnar
- Fækka breiðþotum tímabundið þar sem félagið flýgur ekkert til Kína
Airbus A380 risaþota Lufthansa á flugvellinum í Shanghai í Kína
Lufthansa hefur tekið 13 breiðþotur tímabundið úr flotanum sem verða kyrrsettar næstu vikurnar að minnsta kosti vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.
Lufthansa hefur flogið til fimm áfangastaða í Kína en vegna veirunnar hefur félagið, líkt og fjölmörg önnur
flugfélög, neyðst til þess að hætta öllu áætlunarflug til áfangastaða á meginlandi Kína.
Flugfélagið þýska segir að til standi að nota tækifærið á meðan og nýta tímann í að láta vélarnar
gangast undir viðhaldsskoðun og mögulega nota einhverjar af þeim til að sinna flugi á stuttum flugleiðum á milli Frankfurt, Munchen, Vínarborgar og Zurich ef eftirspurning verður mikil.
Lufthansa tilkynnti þann 14. febrúar að félagið ætlaði að fella niður allt áætlunaflug til Kína
þar til í lok mars en félagið flýgur meðal annars til borga á borð við Peking, Nanjing, Qingdao, Shanghai
og til Shenyang.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.