flugfréttir

Tarom fær lán upp á 5 milljarða frá ríkisstjórn Rúmeníu

- Hefði ekki getað haldið rekstrinum áfram mikið lengur

24. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:12

Boeing 737-300 þota Tarom á flugvellinum í Búdapest í Ungverjalandi

Evrópusambandið hefur gefið ríkisstjórn Rúmeníu leyfi til þess að veita ríkisflugfélaginu Tarom tímabundið lán upp á 5.1 milljarð króna.

Með styrknum er vonast til þess að hægt sé að tryggja áframhaldandi áætlunarflug á vegum félagsins og þá sérstaklega á þeim flugleiðum þar sem Tarom er eina flugfélagið til að sinna þeim áfangastöðum.

Ríkissstjórn Rúmeníu tilkynnti Evrópusambandinu fyrr í þessum mánuði um áætlanir stjórnvalda um að veita Tarom neyðaraðstoð í formi láns þar sem í ljós kom að lausafjárstaða flugfélagsins var orðin mjög slæm.

Rekstarkostnaður félagsins hefur aukist til muna og þá sérstaklega vegna þess hversu dýrt er orðið að halda flugflota félagsins við sökum þess að flugvélar félagsins eru orðnar flestar mjög gamlar.

Fram kemur að Tarom hefði ekki getað haldið rekstrinum gangandi mikið lengur nema að fá meira fé inn í reksturinn í formi fjárhagsaðstoðar.

Rúmenía segir að lánið verði borgað upp að fullu eftir sex mánuði og mun Tarom skila inn fyrir þann tíma endurgerðri rekstaráætlun.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga