flugfréttir
Gerði tilraun til að ræna sjóflugvél um miðja nótt
- Sjóflugvélaræningja leitað í Vancouver - Þrjár flugvélar skemmdust
Atvikið átti sér stað kl. 3:30 að staðartíma aðfaranótt fimmtudagsins
Þrjár sjóflugvélar eru mikið skemmdar eftir að óprúttinn aðili gerði sér lítið fyrir og reyndi að stela sjóflugvél í Vancouver í Kanada um síðustu helgi.
Atvikið átti sér stað í Coal Harbour sjóflugvélahöfninni í Vancouver en lögregla fékk tilkynningu klukkan 3:30 aðfaranótt
föstudagsins að einhver hefði sett sjóflugvél í gang í höfninni og væri búinn að klessa
á tvær aðrar sjóflugvélar.
Fram kemur að sjóflugvélaþjófurinn hafi farið um borð í sjóflugvél af gerðinni
de Havilland Canada DHC-2 Beaver í eigu flugfélagsins Seair sem sinnir farþegaflugi til áfangastaða
í Bresku Kólumbíu og á Seattle/Vancouver-svæðinu.
Fram kemur að þjófurinn hafi ekki náð að hefja flugvélina á loft en hún hafi þó
náð einhverri siglingu og rakst með vængina utan í tvær sjóflugvélar
frá flugfélaginu Harbour Air sem skemmdust töluvert. Meðal annars þá brotnaði vængur á flugvél af gerðinni
DHC-3T Vazar Turbine Otter sem lá við sömu bryggju.
Eins og sjá má þá vantar væng á a.m.k tvær sjóflugvélar en þjófurinn slapp og hefur ekki fundist
Flugvélaþjófsins er nú leitað en hann slapp undan lögreglu í Vancouver sem rannsakar
atvikið. Töluverð röskun varð á fyrstu flugferðunum á föstudagsmorgninum og þurftu
farþegar, sem áttu bókað með sjóflugvél, að fara til flugvallarins í Vancouver og taka hefðbundið áætlunarflug þaðan.
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) segir að nefndin muni ekki rannsaka
atvikið þar sem flugvélin hóf sig ekki á loft en grunur leikur á að það hafi verið áætlunarverk
þjófsins að ná að fljúga.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.