flugfréttir

Flugfélög farin að fella niður flug milli landa vegna Covid-19

25. febrúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:50

Töluverður viðbúnaður hefur verið á flugvöllunum á Mílanó á Ítalíu

Útbreiðsla kórónaveirunnar (Covid-19) er farin að hafa áhrif á áætlunarflug milli annarra landa en Kína en upphaflega fóru flugfélög eingöngu að fella niður allt áætlunarflug til Kína þar sem veiran greindist fyrst.

Nú eru flugfélög byrjuð að fella niður flug til annarra landa þar sem veiran hefur greinst en til að mynda er Tunisair að íhuga að fella niður flug til Ítalíu.

Tunisair hefur flogið frá Túnisborg til Bologna, Napólí, Palermo, Mílanó, Rómar, Feneyja og til Verona en ferðamálaráðherra Túnis segir að til standi að hætta flugi að minnsta kosti til Mílanó á Ítalíu en 287 smit hafa greinst þar í landi.

Þá tilkynntu stjórnvöld í Bahrain að búið væri að stöðva allt flug til og frá Dubai í tvo sólarhringa en 13 smit hafa greinst í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Meðal flugfélaga sem fljúga á milli Bahrain og Dubai eru Emirates, flydubai og Gulf Air.

Þá hefur víetnamska flugfélagið Bamboo Airways ákveðið að hætta að fljúga til Suður-Kóreu en þar hafa 977 smit greinst af kórónaveirunni. Bamboo Airways ætlar að fella niður tvær flugleiðir sem eru flug á milli Da Nang og Seoul og milli Nha Trang og Seoul.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga