flugfréttir
Lufthansa vill kaupa helmingshlut í TAP Air Portugal
Airbus A320 þota portúgalska flugfélagsins TAP Air Portugal
Lufthansa hefur hafið viðræður við TAP Air Portugal um kaup á allt að 45 prósenta hlut í flugfélaginu portúgalska sem gæti þá með því orðið eitt af dótturfélagum Lufthansa Group ef af kaupunum verður.
TAP Air Portugal er í dag í helmingseigu bandaríska fyrirtækisins Atlantic Gateway Consortium sem keypti
45 prósenta hlut í félaginu árið 2015.
Formaður þess fyrirtækis, David Neelemen, segist vilja selja hlut sinn í TAP Air Portugal en Neeleman stofnaði
meðal annars Jetblue á sínum tíma ásamt Azul Brazilian Airlines auk þess sem hann kom að stofnun kanadíska flugfélagsins WestJet.
Portúgalska ríkið á 50% í TAP Air Portugal í dag auk þess sem starfsmenn félagsins eiga 5% hlut í félaginu en
Neeleman og ríkisstjórn landsins hafa verið ósammála um rekstur félagsins sem skilaði í fyrra tapi
upp á 14.6 milljarða króna.
Ef Lufthansa eignast 45% hlut í TAP Air Portugal myndi flugfélagið þýska fá aðgang að mjög stórum markaði
í Suður-Ameríku og þá sérstaklega er kemur að leiðarkerfi félagsins í Brasilíu en TAP Air Portugal flýgur í dag til 10 borga í landinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.