flugfréttir
Hefja flug frá Færeyjum til London Gatwick í sumar
Airbus A320neo þota Atlantic Airways á flugvelinum í Vágar í Færeyjum
Færeyska flugfélagið Atlantic Airways mun hefja áætlunarflug frá Vágar í Færeyjum til Gatwick-flugvallarins í London.
Um árstíðabundið flug er að ræða og verður fyrsta flugið farið þann 23. júní í sumar og verður flogið fram til 11. ágúst
en flogið verður einu sinni í viku, á þriðjudögum.
Atlantic Airways mun nota Airbus A320neo þotu til flugsins til London Gatwick og mun félagið byrja að selja miða
þann 26. febrúar og er farmiðaverð frá 14.000 krónum aðra leiðina.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Atlantic Airways flýgur til London en félagið flaug eitt sinn áður til London Stansted
flugvallarins árið 2014 en þá voru Avro RJ100 þotur notaðar til flugsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.