flugfréttir
Starfsmenn bæði hjá Boeing og Airbus greinast með COVID-19
Frá verksmiðjum Boeing í Everett
Kórónaveirusmit hafa greinst meðal starfsmanna hjá báðum flugvélaframleiðendunum, Boeing og Airbus, en Boeing hefur staðfest að starfsmaður í verksmiðjunum í Everett hafi greinst jákvæður gagnvart COVID-19 veirunni en hjá Airbus er um að ræða starfsmann í verksmiðjunum í Getafe á Spáni.
Fram kemur að starfsmaður við verksmiðjurnar í Everett hafi verið sendur heim eftir að í ljós kom að hann var með
flensueinkenni og þá voru 10 aðrir starfsmenn sendir heim í sóttkví en um 30.000 manns starfa við verksmiðjurnar
í Everett.
Airbus segir að framleiðandinn fari eftir fyrirmælum frá yfirvöldum er kemur að hreinlæti í verksmiðjunum og sé heilsa
starfsmanna í fyrirrúmi og þá sérstaklega á þessum tímum.
Verksmiðjurnar í Getafe, sem staðsettar eru skammt frá Madríd, sjá um framleiðslu og hönnun á íhlutum
fyrir Airbus A380, A350 og A320 en þar starfa um 6.900 manns. Í verksmiðjunum fer einnig fram framleiðsla á íhlutum
á þyrlum á vegum Airbus Helicopters.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.