flugfréttir
Flugturninum á Chicago Midway lokað vegna smits
- Tveir starfsmenn greindust með COVID-19
Flugturninn á Chicago Midway flugvellinum
Flugturninum á Midway-flugvellinum í Chicago hefur verið lokað tímabundið eftir að tveir tæknimenn í turninum greindust með kórónaveiruna.
Samkvæmt upplýsingum frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) hefur flugturninum
verið lokað á meðan verið er að sótthreinsa aðstöðuna í turninum og segir í NOTAM upplýsingum
að enga flugumferðarþjónustu sé að fá eins og er.
Takmarkað flug er um Midway-flugvöllinn og eru nokkrir starfsmenn í turninum en allir þeir
sem hafa starfað í turninum undanfarna daga verða skimaðir fyrir COVID-19.
Í augnablikinu er flugumferðarstjónustan merkt sem „ATC Zero“ sem þýðir að flugturninn er ekki fær
um að veita hefðbundna þjónustu og er ekki von á að flugumferðarþjónusta verði
í boði fyrr en seinna í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.