flugfréttir

7.000 starfsmönnum hjá Textron sagt upp tímabundið

19. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:07

Textron Aviation er einn stærsti flugvélaframleiðandi heims er kemur að minni flugvélum og einkaþotum

Flugvélaframleiðandinn Textron hefur sagt upp tímabundið yfir 7.000 starfsmönnum sem verða á næstunni sendir heim vegna útbreiðslu kórónaveirunnar.

Textron, sem framleiðir bæði Cessna- og Beechcraft flugvélar, segir að starfsmennirnir 7 þúsund verða sendir heim í nokkrum hollum frá 23. mars fram til 27. maí en alls eru 12.000 starfsmenn sem starfa hjá Textron.

„Þessar aðgerðir munu gefa okkur tækifæri á að stemma stigu við útbreiðslu veirunnar“, segir Ron Draper, framvæmdarstjóri Textron, í skilaboðum til starfsmanna sinna en þá óttast framleiðandinn einnig þær breytingar sem verða á eftirspurn eftir nýjum flugvélum á næstunni.

Textron framleiðir meðal annars einkaþotur, litlar einkaflugvélar, þyrlur og flugherma en meðal Cessna-flugvéla sem fyrirtækið framleiðir eru Cessna Skyhawk, Cessna Skylane og Cessna Turbo Stationair, Denali, Caravan og Skycourier.

Í flokki Cessna-einkaþotna sem fyrirtæki framleiðir eru Cessna Citation Longitude, Citation Sovereign, Citation Latitude, Citation XLS, Citation CJ4 og Citation M2.

Þær Beechcraft-flugvélar sem Textron framleiðir í dag eru Bonanza G36, Beech Baron G58 og King Air 350, King Air 350ER, King Air 250 og King Air C90GTx.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga