flugfréttir
Þyrla brotlenti eftir að farþegi fékk að prófa að stýra
- Þyrluflugmaðurinn vildi láta farþegann spreyta sig á að sveima
Þyrla af gerðinni Hughes 269
Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið frá sér lokaskýrslu varðandi þyrluslys sem átti sér stað árið 2018 er flugmaður þyrlu af gerðinni Hughes 269 leyfði farþega að spreyta sig á því að „sveima“ þyrlunni í lágri hæð yfir jörð.
Þyrluflugmaðurinn sagði í kjölfar slyssins að hann hefði leyft farþega sínum, sem hafði ekki réttindi til þess að fljúga
þyrlu, að taka við stjórninni og ætlaði hann að athuga hvort að farþeginn gæti sveimað henni („hover“) í 3 feta
hæð yfir jörðu.
Flugmaðurinn sagði við farþegann: „Þú ert með stjórnina“ en á sama tíma fjarlægði þyrluflugmaðurinn sínar
hendur af stýrinu hjá sér.
Ekki fór betur en svo að farþeginn ýtti stýrinu of langt fram á við með þeim afleiðingum að spaðinn rakst í jörðina
og því næst skall þyrlan sjálf í jörðina og brotlenti.
Slysið átti sér stað í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum þann 14. mars árið 2018 og er það niðurstaða NTSB
að orsök slysinss megi rekja til ákvörðunar flugmannsins um að leyfa farþega sínum að taka við stjórninni.
Bæði þyrluflugmaðurinn og farþegi hans urði fyrir minniháttar meiðslum. Fram kemur að þyrluflugmaðurinn
hafi verið um sjötugt og var hann með atvinnuréttindi til þyrluflugs og með yfir 5.854 heildarflugtíma að baki.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.