flugfréttir
Emirates mun hætta öllu farþegaflugi
Frá flugvellinum í Dubai
Emirates hefur ákveðið að stöðva allt áætlunarflug frá og með 25. mars næstkomandi vegna heimsfaraldursins en félagið mun þó sinna áfram fraktflugi.
Félagið mun fljúga farþegaflug fram á miðvikudag til þess að leyfa ríkisborgurum að snúa heim til Sameinuðu arabísku furstadæmana og til að koma öðrum
farþegum til síns heima en þar sem flest lönd eru farin að setja á útböngubann vegna útbreiðslu COVID-19 þá segir Emirates það ekki vera hagkvæmt að halda
áfram uppi farþegaflugi.
Emirates hafði þegar dregið saman allt áætlunarflug sitt um 70 prósent en félagið hefur hefur 259 þotur í flotanum sem eru allar af gerðinni Airbus A380 og
Boeing 777 og þá starfa um 100.000 manns hjá félaginu.
Félagið segir að það muni fylgjast náið með ástandinu og framvindu mála og um leið og grundvöllur verður fyrir áframhaldandi áætlunarflugi mun farþegaflug
hefjast að nýju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.