flugfréttir
Banna allt innanlandsflug með farþega á Indlandi
Frá flugvellinum í Mumbai á Indlandi
Ríkisstjórn Indlands hefur bannað allt innanlandsflug með farþega þar í landi vegna útbreiðslu kórónaveirunnar sem veldur sjúkdómnum COVID-19.
Bannið mun taka í gildi kl. 23:59 á miðnætti annað kvöld og verða allar flugvélar í innanlandsflugi að vera búnar að lenda fyrir þann tíma á áfangastað.
Þetta bann kemur í kjölfar banns sem sett var á fyrir helgi gagnvart millilandaflugi í eina viku og mun því allt farþegaflug til og frá indverskum flugvöllum
liggja niðri eftir miðnætti á miðvikudag.
Ekki hefur verið tilkynnt um neina dagsetningu varðandi hvenær farþegaflug í innanlandsflugi megi hefjast á ný en fraktflug getur þó haldið áfram með hefðbundnu
sniði.
Bannið mun bitna verst á flugfélögum á borð við Air India, GoAir, Spicejet og IndiGo Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.