flugfréttir
Ryanair leggur öllum flotanum fram í júní
Flugvélar Ryanair
Írska lágfargjaldafélagið Ryanair mun leggja öllum flugflota félagsins þangað til í júní en Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að ástandið sé orðið með þeim hætti að alveg óvíst er hvenær flugfélögin eigi eftir að fá farþegar um borð á ný og gæti það ástand varið næstu 2 til 3 mánuðina.
O´Leary segir að það sé í forgangi að varðveita eins mikið lausafé og hægt er og því sé eina
leiðin að komast hjá því að hafa starfsfólk á launaskrá og leggja flugflotanum á meðan ástandið
gengur yfir.
Því þarf félagið að eiga eins mikinn pening og hægt er ef sú staða kemur upp að mjög fáir
farþegar eigi eftir að bóka flug fyrstu mánuðina þegar flug hefst að nýju en eins og staðan
er í dag er alveg óvíst hversu lengi farþegatölurnar eigi eftir að snúa aftur í sama horf.
Félagið tilkynnti í dag að Ryanair muni ekki fljúga neinar flugferðir í apríl og ekki heldur
í maí og kemur fram að það velti á ríkisstjórnum landa heimsins hversu lengi flugfélögin
nái að þrauka í gegnum þessa erfiðu tíma.
Ryanair hefur boðist til að leigja flugvélar sínar út fyrir björgunarflug fyrir
aðrar Evrópuþjóðir til þess að koma ríkisborgurum til síns heima og verða
sérstakar heilbrigðisöryggisráðstafanir gerðar í tengslum við slíkar flugferðir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.