flugfréttir
De Havilland krefst 6 milljarða króna í bætur frá SpiceJet
- Saka flugfélagið um vanskil á 25 flugvélum sem pantaðar voru
De Havilland Dash 8 Q400 flugvél frá SpiceJet
Kanadíska fyrirtækið De Havilland Aircraft hefur höfðað mál gegn indverska lágfargjaldarfélaginu SpiceJet og er farið fram á að flugfélagið greiði framleiðandanum allt að 6 milljarða króna í skaðabætur vegna samningsbrota.
Málið snýst um ágreining í kjölfar samnings er SpiceJet pantaði 25 skrúfuvélar af gerðinni Dash 8-400 en De Havilland
segir að flugfélagið indverska hafi ekki greitt fyrir afhendingar á 20 af þeim vélum sem búið er að afhenda.
Þá segir De Havilland að SpiceJet sé aðeins búið að greiða 7 milljónir bandaríkjadali (987 milljónir króna) í innágreiðslur
fyrir níutján flugvélar sem búið er að afhenda.
De Havilland segir að af þeirra hálfu sé búið að rifta samningnum og er krafist að SpiceJet skili flugvélunum til baka svo
að fyrirtækið geti selt öðru flugfélgi vélarnar eða leigt þær út. Þá fer fyrirtækið fram á skaðabótagreiðslu upp á
352 milljónir króna á hverja einustu flugvél sem hefur verið í vanskilum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.