flugfréttir
737 MAX í framleiðslu á ný í maí
Boeing ætlar að setja framleiðslu á Boeing 737 MAX aftur í gang í maí
Boeing stefnir á að hefja framleiðslu á Boeing 737 MAX á ný í maí en hlé var gert á framleiðslunni í janúar.
Boeing segist vona til þess að setja framleiðsluna í gang á ný og hefur framleiðandinn beðið birgja um að setja
sig í startholurnar og undirbúa sig fyrir að senda fyrstu íhlutina til verksmiðjanna í Renton í apríl.
Greg Smith, fjármálastjóri Boeing, segir að í raun og veru muni framleiðslan fara mjög rólega af stað og verði í fyrstu
aðeins um að ræða upphitun áður en framleiðslan hefst með fullum krafti.
Smith segir hinsvegar að í forgangi sé að aflétta kyrrsetningu vélanna og koma Boeing 737 MAX vélunum aftur í loftið
en þann 15. mars sl. var eitt ár liðið frá því að 737 MAX vélarnar voru kyrrsettar um allan heim.
Heimsfaraldurinn vegna kórónaveirunnar hefur orðið til þess að Boeing hefur þurft að loka framleiðslunni
á Seattle-svæðinu með því að stöðva framleiðsluna í Everett og hafa áhrifin af COVID-19 ollið enn meiri
röskun á vottunarferlinu er kemur að Boeing 737 MAX.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.