flugfréttir
Flugvélaleiga höfðar mál gegn Boeing vegna 737 MAX
- Segja að Boeing neiti að endurgreiða eftir að pöntun var afturkölluð
Flugvélaleigan segir að Boeing neiti að endurgreiða til baka þá upphæð sem greitt hafi verið inn á pöntunina sem búið er að hætta við
Flugvélaleigufyrirtækið ALAFCO í Kúvæt hefur höfðað mál gegn Boeing vegna pöntunar fyrirtækisins á Boeing 737 MAX en ALAFCO segir að Boeing hafi ekki endurgreitt fyrirtækinu þær greiðslur sem greiddar hafa verið til framleiðandans eftir að búið var að hætta við pantanir í þotuna.
ALAFCO hafði pantað alls 40 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX en fyrst var staðfest pöntun í tuttugu
þotur á Farnborough flugsýningunni árið 2012 að andvirði 279 milljarða króna.
Fimm árum síðar lagði ALAFCO inn aðra pöntun í tuttugu fleiri þotur sömu gerðar en í dag hefur
fyrirtækið hætt við pöntun sína í 737 MAX eins og hún leggur sig.
ALAFCO segir hinsvegar að Boeing neiti að endurgreiða fyrirtækinu þær upphæðir sem hafa verið lagðar
inn á pöntunina sem eru forsendur kærunnar sem lögð hefur verið inn fyrir dómstól í Chicago þar sem
Boeing hefur höfuðstöðvar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.