flugfréttir

Flugvél með hjálpargögn fórst í aðflugi í Sómalíu

- Enginn af þeim sex sem voru um borð komst lífs af

5. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:37

Flugvélin sem fórst var á leið frá Baidoa til El Bardale í Sómalíu

Sex létust í flugslysi í Afríku í gær er flugvél af gerðinni Embraer EMB-120RT Brasilia frá flugfélaginu African Express Airways fórst í aðflugi að flugvelli í Sómalíu.

Flugvélin var að flytja lyf og sjúkargögn frá borginni Baidoa í baráttunni við kórónaveirufaraldurinn og var flugvélin í aðflugi að flugvellinum í bænum El Bardale þegar hún fórst í um fimm kílómetra fjarlægð frá flugvellinum.

Fram kemur að vélin hafi verið í þriggja mínútna fjarlægð frá flugvellinum en aðrar heimildir herma að vélin hafi verið töluvert lengra og í um 2.000 feta hæð yfir sjávarmáli þegar hún fórst.

Um borð voru tveir flugmenn og fjórir farþegar og komst engin lífs af en vélin hafði verið tekin á leigu af stjórnvöldum í Sómalíu.

Orsök slyssins eru enn óljós en fyrstu getgátur sem fóru á kreik voru að flugvélin hafi verið skotin niður þar sem hryðjuverkasamtökin Shabaab ráða yfir svæðinu auk þess sem öfgahópar frá Eþíópíu hafa verið sakaðir um að hafa skotið vélina niður en uppreisnarmenn hafa þvertekið fyrir að svo sé.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga