flugfréttir
Heathrow-flugvöllur tapar 1.2 milljörðum á hverjum degi
- Draumurinn um þriðju flugbrautina er úti í að minnsta kosti áratug
Þota hefur sig á loft frá Heathrow-flugvellinum í London
Svo virðist sem að draumurinn um þriðju flugbrautina á Heathrow-flugvelli sé úti vegna COVID-19 heimsfaraldursins og lítur út fyrir að allar áætlanir varðandi þriðju flugbrautina verði settar á hilluna í allt að heilan áratug.
John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins, sem er sá stærsti í Bretlandi, segir að
áhrif heimsfaraldursins gæti þýtt að það muni líða allt að 10 til 15 ár þangað til að Heathrow-flugvöllur verði
komin aftur á þann stað að þörf verður fyrir stækkun með þriðju flugbrautinni.
Í mörg hefur hefur þriðja flugbrautin verið mikið hitamál og hafa miklar rannsóknir og athuganir verið gerðar
og fengu flugvallaryfirvöld loksins grænt ljós fyrir að hefja framkvæmdir við þriðju flugbrautina.
Það fer ekki mikið fyrir öngþveitum á Heathrow-flugvellinum sem lengi hefur verið þekktur fyrir að vera mjög þétt setinn
COVID-19 faraldurinn hefur hinsvegar haft veruleg áhrif og er óvissan mikil og gætu langtímaáhrifin orðið
mun meiri en talið er í dag er kemur að farþegafjölda um Heathrow.
Gæti orðið þörf aftur fyrir þriðju flugbrautina innan 15 ára
„Við verðum að sjá til og fylgjast með þróun mála á næstu árum. Ef vel tekst til við að endurbyggja efnahag
Bretlands þá gætum við þurft á þriðju flugbrautinni að halda innan 10 til 15 ára“, segir Holland-Kaye.
Framkvæmdarstjórinn tók einnig fram að Heathrow-flugvöllur sé að tapa um 200 milljónum Sterlingspunda
á mánuði á þessum tímum sem samsvarar 1,2 milljarði króna á dag en Heathrow Airports, rekstraraðili
flugvallarins, segist hafa lausafé til þess að reka Heathrow áfram í 12 mánuði jafnvel þótt að engin flugvél myndi fara um flugvöllinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.