flugfréttir
Mitsubishi tekur við CRJ-deildinni af Bombardier
Mitsubishi Heavy Industries mun taka yfir CRJ deildina frá Bombardier
Japanska fyrirtækið Mitsubishi Heavy Industries (MHI) mun um næstu mánaðarmót ganga frá kaupum og yfirtöku á CRJ verkefninu við kanadíska flugvélaframleiðandann Bombardier.
Fram kemur að búið sé að uppfylla allar kröfur fyrir yfirtökunni og stofna dótturfélagið MHI RJ Aviation Group sem mun
sjá um framleiðslu og yfirumsjón með CRJ þotunum héðan í frá.
Mitsubishi mun því sjá um þjónustu, viðhald, markaðsetningu, sölu og flughæfnisvottun fyrir CRJ þoturnar en samningurinn
er metinn á um 80 milljarða króna.
Framleiðsludeildin verður áfram staðsett hjá Bombardier í Mirabel í Kanada og verða varahlutir ennþá framleiddir þar en verið
er að ljúka við að framleiða síðustu CRJ-þoturnar og mun verksmiðjan sjálf leggjast af á seinni helmingi ársins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.