flugfréttir
Segist eiga von á skaðabótum frá Boeing vegna 737 MAX
- Segja skaðbótagreiðsluna koma sér vel í heimsfaraldrinum
Boeing 737 þotur brasilíska flugfélagsins GOL
Brasilíska flugfélagið GOL (Gol Linhas Aéreas) segir að félagið á von á skaðabótagreiðslu upp á 60 milljarða króna frá Boeing vegna kyrrsetningu Boeing 737 MAX vélanna þar sem félagið hefur ekki getað notað vélarnar í meira en 14 mánuði.
Í yfirlýsingu frá GOL segir að skaðabótagreiðslan frá Boeing sé kærkomin og komi sér einstaklega vel á þessum tímum
þar sem félagið hefur orðið illa fyrir barðinu af kórónaveirufaraldrinum líkt og önnur flugfélög.
GOL pantaði á sínum tíma 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og hafði félagið fengið sjö afhentar áður en vélarnar voru
kyrrsettar í mars í fyrra.
Flugfélagið brasilíska segir að eftirspurnin hafi dregist saman um 80 prósent eftir að kórónaveiran breiddist út en félagið segist hafa nægt lausafé til þess að þrauka í 10 mánuði til viðbótar í þessu ástandi.
GOL segist eiga í viðræðum við fjárfesta um söfnun á auknu hlutafé upp á 24 milljarða króna og þá hefur félagið einnig
greint frá því að viðræður standi yfir við brasilíska þróunarbankann (BNDES) um fé upp á 74 milljarða króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.