flugfréttir

Finnair stefnir á flug til 40 áfangastaða í júlí

- Einblína á að koma fluginu til Asíu aftur í rétt horf

19. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:05

Airbus A330 breiðþotur Finnair á flugvellinum í Helsinki

Finnair stefnir á að halda áfram áætlunarflugi til 40 áfangastaða frá og með 1. júlí næstkomandi en félagið ætlar að hefja meðal annars flug til flestallra áfangastaða sinna í Asíu.

Félagið mun uppfæra flugáætlun sína með eins mánaðar fyrirvara um leið og önnur lönd aflétta ferðabanni og á sama tíma og eftirspurnin fer að taka við sér.

Finnair ætlar að einbeita sér að flugi til Kína og stendur meðal annars til að hefja flug til Peking, Shanghai og til Hong Kong og til Japans verður flogið aftur í júí til Nagoya, Osaka og til Tókýó. Þá verður einnig flogið til Singapore, Seoul og til Bangkok.

Í ágúst mun síðan Finnair byrja að fljúga aftur til Delhi og til New York auk Miami, Krabi og Phuket.

Þeir áfangastaðir í Evrópu sem Finnair mun byrja að flúga til eru Berlín, Brussel, Búdapest, Kaupmannahöfn, Dublin, Dusseldorf, Edinborg, Frankfurt, Gautaborg, Genf, Hamgborg, London, Malaga, Manchester, Moskva, Munchen, Osló, París, Prag, Riga, Tallinn, Stokkhólmur, Pétursborg, Vilnius, Vín og Zurich. Þá mun félagið hefja flug til fleiri áfangastaða í Evrópu í ágúst.

Finnair segir að félagið muni einbeita sér að því að aðlaga flugáætlunina sína með skömmum fyrirvara að því hvernig markaðurinn þróast eftir heimsfaraldurinn og breyta henni í samræmi við það.

Félagið ætlar sér að nota Aibus A350 í langfluginu og smærri farþegaþotur á styttri flugleiðum en stækka farkostinn á stuttum flugleiðum eftir því sem eftirspurnin eykst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga