flugfréttir
Air France hættir með A380
- COVID-19 hefur orðið til þess að risaþotan fer úr flota flugfélagsins franska
Airbus A380 risaþoturnar hafa verið í flota Air France frá árinu 2009
Air France hefur tilkynnt að flugfélagið franska hafi tekið þá ákvörðun að hætta með allar Airbus A380 risaþoturnar.
Air France hefur haft níu A380 risaþotur í flotanum en vegna þeirra áhrifa sem COVID-19 heimsfaraldurinn
hefur haft á rekstur félagsins hefur verið ákveðið að hætta með risaþoturnar.
„Að hætta með Airbus A380 er í samræmi við stefnu Air France-KLM sem er að aðlagast
að betri samkeppnishæfni með sparneytni og hagræðingu að leiðarljósi“, segir í yfirlýsingu frá flugfélaginu en upphaflega
stóð til að Air France myndi hafa risaþoturnar áfram að minnsta kosti fram til ársins 2022.
Air France hafði 10 risaþotur í flotanum en félagið hætti með eina risaþotu rétt fyrir lok ársins 2019 en hinar
níu hafa verið kyrrsettar frá 16. mars vegna kórónaveirufaraldursins.
Airbus A380 risaþota Air France í flugtaki
Air France á fimm risaþoturnar í flotanum á meðan flugvélaleigan DS Aviation á fjórar
Airbus A380 risaþotur félagsins en meðalaldur risaþotna Air France eru 9.2 ár.
Risaþotuflotur Air France tóku 516 farþega en sæti voru fyrir 389 farþga á almennu farrými, 38
á premium-farrými, 80 á viðskiptafarrými og níu farþega á First Class farrými.
Air France notaði Airbus A380 risaþoturnar í flugi frá París til Abidjan, Atlanta, Jóhannesarborgar,
Los Angeles, Mexíkóborgar, Miami, New York, Shanghai og til Washington Dulles.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.