flugfréttir
Fóru of nálægt hvor annarri á flugvellinum í Hong Kong
McDonnell Douglas MD-11 fraktþota FedEx í lendingu á flugvellinum í Hong Kong
Flugmálayfirvöld í Hong Kong hafa hafið rannsókn á atviki sem átti sér stað er tvær flugvélar fóru of nálægt hvor annarri á Chek Lap Kok flugvellinum í Hong Kong fyrir helgi.
Atvikið átti sér stað þann 22. maí sl. og var um að ræða fraktþotu frá FedEx af gerðinni
McDonnell Douglas MD-11 sem var í aðflugi að flugvellinum en á sama tíma var farþegaþota
frá Hong Kong Airlines af gerðinni Airbus A330-300 að fara í loftið á sömu braut.
Flugmennirnir á MD-11 þotunni urðu þess varir að A330 þotan var enn á brautinni í miðju
flugtaksbruni og ákváðu þeir því að hætta við lendinguna og fara í fráhvarfsflug.
Flugumferðarstjórar báðu flugmennina á A330 þotunni að klifra ekki hærra en í 2.000 fet þar
sem MD-11 fraktþotan var að hækka flugið eftir að hafa hætt við lendinguna.
Samkvæmt upplýsingum kemur fram að aðskilnaður vélanna tveggja var um hálf míla (0.5 nm)
þegar minnst fjarlægð var á milli vélanna þegar önnur var í fráhvarfsflugi og hin í flugtaki.
Flugmálayfirvöld í Hong Kong flokka atvikið sem alvarlegt atvik en báðar vélarnar héldu
flugi sínu áfram án eftirmála og lenti MD-11 þotan skömmu síðar eftir flug frá Anchorage á
meðan A330 breiðþotan hélt för sinni áfram til Bangkok en fram kemur að engir farþegar
voru um borð í Airbus A330 þotunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.