flugfréttir
Fyrsta tilraun með eldflaug á vegum Virgin mistókst
- Ekki tókst að ræsa aflgjafa á Launcher One eldflauginni
Fljótlega eftir að búið var að sleppa flauginni kom í ljós að ekki var allt með felldu og var ákveðið að hætta við að ræsa aflgjafann á eldflauginni
Fyrstu tilraun í eldflaugaprófunum á vegum fyrirtækis í eigu Richard Branson, er snúa að Virgin Orbit verkefninu, mistókst í dag.
Ein af fyrrverandi Boeing 747 júmbó-þotum flugfélagsins Virgin Atlantic flaug með
eldflaugina „Launcher One“ upp í háloftin yfir Kyrrahafinu þar sem fyrstu prófanir með að sleppa
flauginni áttu að fara fram en júmbó-þotan „Cosmic Girl“ hefur verið sérstaklega útfærð fyrir
Virgin Orbit verkefnið.
Fljótlega eftir að búið var að sleppa flauginni kom í ljós að ekki var allt með felldu og var ákveðið
að hætta við að ræsa aflgjafann á eldflauginni þar sem í ljós kom að aðeins voru helmingslíkur
á að ræsing myndi heppnast.
Boeing 747 þotan snéri við og lenti skömmu síðar og sakaði engan um borð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.