flugfréttir
An-225 flýgur á ný eftir viðgerð vegna bilunar í hreyfli
- Var kyrrsett í þrjá daga í Montréal í Kanada
Antonov An-225 „Mriya“ á Mirabell-flugvellinum í Montreal í Kanada sl. sunnudag
Risavöruflutningaþotan, Antonov An-225 Mriya, hefur hafið sig á loft á ný eftir að hafa verið biluð í þrjá daga í Kanada frá því um helgina en bilun kom upp í einum af sex hreyflum flugvélarinnar.
Antonov An-225 þotan hefur verið mikið notuð sl. vikur í flugi með lækningavörur vegna
COVID-19 heimsfaraldursins en á dögunum flaug þotan með frakt frá Tianjin í Kína
til Montréal í Kanada með viðkomu í Nagoya í Japan og í Anchorage í Alaska.
Þotan lenti í Montréal sl. laugardag og tók það tíu vörubíla alls 12 klukkustundir að afferma þotuna
en skömmu síðar kom í ljós bilun í eldsneytisdælum sem tengjast hreyfli númer 4.
Kalla þurfti til flugvirkja í Úkraínu sem héldu af stað frá Antonov Airport flugvellinum í Hostomel
til Kanada með varahluti og var flogið til Montréal með Antonov An-74T þotu með viðkomu
á Keflavíkurflugvelli þar sem vélin lenti í gær til þess að taka eldsneyti.
Það tók 12 klukkustundir að afferma An-225 þotuna við komuna til Kanada á laugardag
Viðgerð lauk í gær og hélt Antonov An-225 þotan af stað í morgun frá Montréal áleiðis til
Anchorage þar sem hún lenti nú á sjöunda tímanum í kvöld að íslenskum tíma.
Næsta sendiferð An-225 þotunnar er að ferja 114 tonn af lækningavörum frá Tianjin til Toronto
en meðal þess sem þotan mun fljúga með í næstu ferð eru andlitsgrímur, hlífðarbúnaður og saumavélar.
Antonov An-225 þotan í aðflugi að Ted Stevens flugvellinum í Anchorage í dag kl. 18:05
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.