flugfréttir

Umhverfisvænni aðferð prófuð til að aka flugvélum á Schiphol

- Hægt að færa flugvélar frá hlaði og út á flugbraut án afls frá hreyflunum

28. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:37

Með þessari tækni væri hægt að aka flugvélum um Schiphol-flugvöll með mun sparneytnari og umhverfisvænni hætti

Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines hefur hafið tilraunir með sjálfbæra tækni við akstur flugvéla á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam.

Tilraunirnar eru framkvæmdar með dráttarökutækjum sem eru knúin áfram með umhverfisvænum orkugjafa sem mun ýta flugvélum úr hlaði og alveg í brautarstöðu á flugbrautinni.

Með þessari leið þyrftu flugvélar ekki að ræsa hreyflana fyrr en rétt fyrir flugtak og með því myndi sparast mikill eldsneytiskostnaður og allt að 50 til 85 prósent sparnaður myndi eiga sér stað við akstur á flugvelli.

Schiphol-flugvöllur framkvæmir tilraunirnar í samvinnu við þrjú flugfélög sem eru KLM, Transavia og Corendon og eru notuð dráttarökutæki frá fyrirtækinu Taxibot sem vinnur að þróun á þessari tækni.

„Við viljum sjá hversu lengi það tekur að færa flugvél frá hlaði og út á flugbraut og hvaða áhrif það hefur á viðhald á hreyflum og hvað svona aðferð myndi þýða fyrir Schiphol-flugvöll“, segir Jeroen Jaartsveld, verkefnastjóri hjá KLM.

Verkefnið er einnig hluti af verkefninu „Fly Responsibly“ sem var ýtt úr vör í fyrra sem er stefna KLM til að draga úr kolefnislosun um allt að 15 prósent á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga