flugfréttir
Um 60.000 störf í hættu ef SmartWings fer í gjaldþrot
Flugvélar SmartWings á flugvellinum í Prag
Óttast er að það gæti haft áhrif á allt að 60.000 störf sem eru í hættu ef tékkneska fyrirtækið SmartWings Group verður gjaldþrota en fyrirtækið á meðal annars flugfélagið Czech Airlines.
Tékkneska ríkisstjórnin hefur rætt um hvaða leiðir hægt væri að fara til þess að bjarga rekstri SmartWings
og hefur meðal annars verið rætt um að ríkisstjórnin myndi kaupa 100 prósenta hlut í félaginu
en stjórn SmartWings vill ekki fara þá leið og vill eingöngu fá annaðhvort lán eða vilyrði fyrir láni ef
allt fer á versta veg.
Í dag á tékkneski viðskiptajöfurinn Jiri Simane 50.1 prósent í SmartWings og Czech Airlines ásamt
öðrum hluthöfum á meðan kínverska fyrirtækið CITIC Group á 49.9% í félögunum.
SmartWings er stærsta flugfélagið í Tékklandi og rekur félagið dóttturfélög undir sama nafni í
Ungverjalandi, Póllandi og í Slóvakíu auk þess sem félagið er móðurfélag Czech Airlines.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.