flugfréttir
Flugfélagið LIAT fer í gjaldþrot
- Ætla að stofna nýtt flugfélag en halda nafninu og sama merki
ATR 72-200 flugvél frá LIAT á flugvellinum í Willamstad á eyjunni Curacao
Flugfélagið LIAT (Leeward Islands Air Transport) á Karíbahafseyjunni Antígúa verður tekið til gjaldþrotaskipta og hafa stjórnvöld á eyjaklasanum tilkynnt að nýtt flugfélag verði stofnað í stað þess.
Gaston Browne, forsetisráðherra Antígúa og Barbúda, segir að COVID-19 hafi ekki hjálpað til við
reksturinn og var afkoma félagsins slæm fyrir faraldurinn og uppsafnað tap því of stór biti til að kyngja fyrir
fjárfesta og ríkisstjórnina.
Sögu LIAT má rekja 64 ár aftur í tímann en félagið var stofnað árið 1956 og hóf félagið rekstur með
einni flugvél af gerðinni Piper Apache sem var notið til að fljúga með farþega á milli Antígúa og eyjunnar Montserrat.
Browne segir að samfélagið á eyjunum mun ekki ná að þrífast án þess að hafa flugsamgöngur og verði því að stofna
nýtt flugfélag en til þess þarf fjármagn frá hluthöfum og öðrum einkaaðilum.
LIAT hefur hinsvegar ekki mikið af eigum upp í skuldirnar en flugfloti félagsins telur tuttugu flugvélar sem allar
eru af gerðinni ATR og eru aðeins þrjár flugvélar í eigu félagsins.
Brownse tekur fram að félagið vill helst ekki skipta um nafn og verði reynt að halda merki LIAT áfram á lofti en félagið
er eitt af þeim flugfélögum sem flýgur til St. Maarten og hafa flestir sem kannast við flugfélagið séð myndir
af flugvélum félagsins á Princess Juliana flugvellinum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.