flugfréttir

Yfir 90 prósent starfsfólks hjá Jet Time sagt upp

30. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:36

Boeing 737-700 þota flugfélagsins Jet Time á Reina Sofia flugvellinum á Tenerife

Danska flugfélagið Jet Time hefur sagt upp 90 prósent af öllu starfsfólki félagsins eða 313 af þeim 342 sem hafa starfað hjá félaginu.

Meðal þeirra sem hefur verið sagt upp eru flugmenn, flugfreyjur og flugþjónar, flugvirkjar auk starfsfólks á skrifstofum félagsins.

Jet Time flaug að jafnaði yfir 400.000 Dönum, Finnum og Svíum til sólarlanda við Miðjarðarhafið á ári hverju en vegna COVID-19 heimsfaraldursins þá stefnir í að félagið fari á mis við 16 milljarða króna í tekjur yfir sumarmánuðina.

Danskir stjórnmálaflokkar og þingmenn á danska þinginu hafa unnið að því að leggja lokahönd á björgunarpakka fyrir dönsk fyrirtæki í fluginu að andvirði 5 milljarða króna en fyrir Jet Time þá er biðin eftir þeim pakka orðin of sein og félagið þarf að grípa til aðgerða.

„Þetta er mjög sorglegur dagur fyrir okkur í Jet Time fjölskyldunni og sá versti í 15 ára sögu félagsins“, segir Jørgen Holme, framkvæmdarstjóri félagsins, í samtali við danska ríkisútvarpið (DR).

Jet Time hefur haft níu farþegaþotur í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737-700 og Boeing 737-800 en félagið mun leita leiða til þess að fækka í flotanum og segja upp leigusamningum á mörgum vélum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga