flugfréttir
Tólf hóteleigendur á Kanarí stofna nýtt flugfélag
- Segja mikilvægt að Kanaríeyjar séu með sitt eigið flugfélag
Hópurinn samastendur af yfir 12 rekstaraðilum í hótelbransanum á Kanaríeyjum
Hópur af hóteleigendum á Kanaríeyjum, sem hafa miklar áhyggjur af ferðamannahruninu á eyjunni, hafa ákveðið að taka höndum saman og stofna sitt eigið flugfélag og hefur hópurinn þegar tryggt sér eina Airbus A320 farþegaþotu sem notuð verður til flugsins.
Til stendur að hefja áætlunarflug í vetur en um er að ræða eigendur yfir tólf hótela sem staðsett eru
á Tenerife, La Palma og á eyjunni La Gomera.
Hópurinn hefur fengið til liðs við sig flugfélagið One Airways sem mun annast ráðgjöf
og flugrekstur fyrst um sinn en Airbus A320 þotan verður keypt frá færeyska flugfélaginu
Atlantic Airways.
One Airways hafði gefið í skyn í apríl í vor að í deiglunni væri að stofna nýtt flugfélag
á Kanaríeyjum með höfuðstöðvar á syðri flugvellinum á Tenerife.
Þotan sem mun fara til Kanaríeyja ber skráninguna OY-RCJ og hefur hún verið notuð
að undanförnu í áætlunarflugi á milli Vágar og Kaupmannahafnar en Jóhanna á Bergi, framkvæmdarstjóri Atlantic Airways, segir að stefna félagsins sé að vera
aðeins með Airbus A320neo þotur í flotanum frá og með árinu 2024.
Nýja flugfélagið stefnir á að byrja á áætlunarflugi á milli Kanaríeyja og meginlands Spánar með
möguleika á að fljúga til fleiri áfangastaða í Evrópu.
Airbus A320 þota frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways mun verða fyrsta flugvél nýja flugfélagsins á Kanaríeyjum
Hóteleigendurnir hafa ásamt fleiri fjárfestum stofnað eignarhaldsfélag utan um rekstur hiðs nýja flugfélags
sem nefnist Sociedad Limitada og hefur félagið fengið fullan stuðning frá eyjastjórninni á Kanaríeyjum.
Í yfirlýsingu frá félaginu segir að meðal annars að gjaldþrot Thomas Cook á síðasta ári hafi
opnað augu manna fyrir því að Kanaríeyjar verði að vera sjálfstæðar þegar kemur að
flugsamgöngum til eyjanna þar sem gjaldþrot erlendra flugfélaga geti haft gríðarleg
áhrif á ferðamannaiðnaðinn.
„Mörg flugfélög gætu orðið gjaldþrota á næstunni. Hvað ætlum við að gera ef ferðamenn hætta
að koma þar sem ekki verður hægt að fljúga hingað?“, segir Jorge Marichal, formaður félagsins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.